Þeir þekkja þetta orðið vel sem fljúga oft með lággjaldaflugfélögum. Baráttan um besta sætið þegar tilkynning kemur um að ganga megi um borð.

Er ekki röðin komin að mér? Skjáskot

Er ekki röðin komin að mér? Skjáskot

Reyndar eru sífellt stífari reglur þegar ganga skal um borð ekki lengur takmarkað við þessi ódýru flugfélög. Mörg þau stærri sjá ofsjónum yfir góðu gengi lággjaldaflugfélaga og ekki síður stórtap á því að leyfa fólki að velja sæti án greiðslu.

Þetta hefur valdið taugatitringi hjá milljónum flugfarþega. Svo miklum að lággjaldaflugfélagið JetBlue í Bandaríkjunum hefur látið framleiða bráðfyndið myndband svona rétt til að sýna hvernig best er að ganga um borð og hvað ber að forðast.