Glöggir lesendur Fararheill ættu að muna hér fyrir tveimur árum síðan þegar Leifsstöð montaði sig sýknt og heilagt af því að hafa verið valinn besti litli flugvöllur Evrópu af einhverri stofnun sem enginn þekkir. En notendur gefa stöðinni ekki merkilega einkunn.

Lítt spennandi einkunnir sem Isavía fær fyrir Leifsstöð sína hjá notendum. Skjáskot

Lítt spennandi einkunnir sem Isavía fær fyrir Leifsstöð sína hjá notendum. Skjáskot

Leifsstöð fær 4 af 10 mögulegum samkvæmt notendum sem gefið hafa sitt álit hjá ferðavefnum Skytrax. Sem vitaskuld er falleinkunn þó þarna úti finnist vissulega töluvert verri flugvellir.

Sú einkunn töluvert frábrugðin toppeinkunn Airports Council International sem gaf Leifsstöð frábæra dóma hér fyrir tveimur árum og Isavía auglýsti eins og þeir hefðu unnið Ólympíugull. Um að gera að mæta sex tímum fyrir flug vegna þess hve skemmtilegt væri að hanga á flugvellinum.

Þó ekki sé kannski við Isavía að sakast að Leifsstöð sé sprungin og það fyrir löngu þá er vægast sagt asnaskapur að setja sig á háan hest í auglýsingum í miðri sprengingu. Leifsstöðvarfólk hefur vitað um skeið að með sífellt fleiri flugfélögum og ferðum til og frá landinu væri ljóst að andrúmsloftið í lítilli flugstöðinni yrði ansi eitrað mjög fljótt.

Sem kom á daginn. Þó tekist hafi að hluta að lagfæra tímabundið hörmungar síðasta sumars þar sem bið og tóm leiðindi út í eitt beið flestra sem um völlinn fóru þá þarf fólk að vera töluvert skert til að setja Leifsstöð á háan hest í dag. Rándýrar verslanir, rándýrir veitingastaðir, sæti mjög af skornum skammti, öryggisleit löng og þreytt á annatíma og alltaf fjölgar þeim er þarf að skutla með rútum út að vélum sem ekki komast að flugstöðinni vegna anna. Slíkt sleppur fínt á Kanaríeyjum eða Jamaíka enda veður með ágætum 99% tímans. En að skrönglast upp í flugvél í nístandi íslensku skítaveðri er ekki alveg þjónusta á heimsmælikvarða.

En það er hér sem hjá Matvælastofnun. Forstjóranum dettur ekki í hug að segja af sér þó hann sé rammsekur um að hafa skitið á neytendur um áratugaskeið. Nei, hann ætlar bara að læra af þessu….