Við hjá Fararheill erum undrandi. Höfum stúderað allar þessar jólagjafahandbækur- og blöð sem komið hafa út að undanförnu og nóg af alls kyns glimrandi glingri og drasli sem verður gleymt áður en Skaupið byrjar. En engar safaríkar pakkaferðir er að finna í þessum sneplum…

Safaríferð í Tanzaníu? Væri það svo hræðileg jólagjöf 🙂
Hágæða viðgerðarstandur fyrir reiðhjól, snjallúr sem segir þér hvenær þú þarft að fá þér vökva eða mátt eiga von á blæðingum, Hvolpasveitarnáttföt, gjafakort hjá bensínstöðinni N1. Það er af ýmsu að taka þessi jólin samkvæmt jólabæklingunum. En fátt finnst þar sem gerir lífið raunverulega innihaldsríkara.
Engir ferðaþjónustuaðilar virðast auglýsa í jólabæklingum þeim er við höfum séð. Icelandair hætt að selja „jólagjafabréf“ og selur nú bara „gjafabréf.“ Hvergi sérstök jólatilboð að finna hjá neinni innlendri ferðaskrifstofu þó slík jólatilboð séu algeng erlendis.
Það undarlegt vegna þess að ferð eða flug út í heim er gjöf sem EKKI er gleymd þegar fólk vaknar upp á jóladag. Það er gjöf sem ætti að hrísla vellíðan um alla með blóðþrýsting alveg fram að brottför og kannski gott betur. Það líka gjöf sem sterkar líkur eru á að veiti ánægju og vellíðan, styrki vináttu eða ástarsambönd og líklega gjöf sem greypt verður í huga þiggjanda fram á dauðadag.
Verður það sagt um flotta snjallúrið? Verður það sagt um Hvolpasveitarnáttfötin? Gucci ilminn? Bensínstöðvarkortið? Eða manstu hvað þú fékkst að gjöf frá fjölskyldumeðlimum um jólin 2014?
Varla…
Út með þig 🙂







