Þá hefur ný ferðaskrifstofa skattaskjólselskandans Andra Más Ingólfssonar opnað dyr sínar á netinu. Þar monta menn sig af starfsfólki með áratugalanga reynslu af utanlandsferðum. Samt virðist þetta ekki ýkja merkilegt.

Algarve í sumar? Ekkert að finna hjá Aventura.

Fyrir það fyrsta er þetta engin ferðaskrifstofa eins og sakir standa. Þetta er bara flug- og hótelbókunarvefur. Með öðrum orðum óþarfur milliliður nema fyrir þá 36 ellilífeyrisþega á landinu sem enn kunna ekkert á netið.

Aventura býður reyndar upp á „pakka” með því að samtvinna flug og gistingu en það ekkert betra en gera hlutina sjálf heima í eldhúsinu. Þá virðist úrval slíkra ferða merkilega takmarkað þó það kunni að lagast þegar fram líða stundir. Við komumst til dæmis ekki til Algarve í Portúgal gegnum vef Aventura þó þangað sé auðveldlega komist með einni millilendingu í velflestum borgum Evrópu.

Verst er þó klárlega að þessi flug+hótelvefur Aventura er eins aftarlega á meri í verðlagningu og framast er unnt. Alveg kristaltært að Aventura er að taka feita þóknun fyrir flug og ferðir sínar.

Gott dæmi um það má sjá á skjáskotinu hér að neðan. Allra lægsta verð á flugi sem Aventura býður til London (Luton) 9. – 16. apríl er fram og aftur fyrir tvo saman með Wizz Air:

Hmm! Þetta virðist vera í dýrari kantinum og ekki tangur né tetur af farangri með í för. Hvað ef við vippum okkur bara sjálf yfir á bókunarvef Wizz Air og leitum að sama flugi? Þá fáum við þetta:

Flugferðirnar fram og aftur á vef Wizz án farangurs kosta parið alls 280 evrur eða 39 þúsund krónur miðað við gengi dagsins. Það er bara NÍU ÞÚSUND KRÓNUM lægra verð fyrir nákvæmlega sömu vöruna.

Við fundum allnokkur slík dæmi en ekki skal þó útiloka að Aventura sé samkeppnishæfara í stöku ferðum öðrum. Málið að gefa sér það ekki frá upphafi.

Að síðustu þetta hér til hliðar: Fyrirtæki sem er rétt að slefa í mánaðarafmælið gefur til kynna á vef sínum að það hafi verið sextán ár í bransanum. Hvað annað er þetta fyrirtæki að feika?