Húrra fyrir Nýsjálendingum! Nánar tiltekið stjórnvöldum á því ágæta landi. Þar er nú formlega bannað að bjóða Jóni og Gunnu ferðamönnum að svamla um með háhyrningum. Þó fyrr hefði verið!!!

Að njóta dýralífs úr fjarska er yfirleitt dásamlegt út í eitt. Að heima návígi við villt dýrin er mínus fyrir þau öll.
Fátt dásamlegra fyrir dýravini en að komast í námunda við villt og glæsileg dýr jarðar. Það er að segja þau sem eftir eru. Okkur dreymir öll um að svamla með háhyrningum, valsa um meðal fíla og nashyrninga, setjast niður á ísnum skammt frá hópi kóngamörgæsa eða bara tjalda á hálendinu og vitna hinar og þessar tegundir fugla berjast fyrir lífinu.
Nema hvað sífellt fleiri rannsóknir gefa sterklega til kynna að við erum að hafa mun alvarlegri áhrif á dýralífið en nokkur gerir sér grein fyrir.
Ástæða þess að stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hafa lagt bann við dúlleríi með háhyrningum er einfaldlega sú staðreynd að nærvera mannfólks gerir okkur vissulega glöð og spennt en hefur miður góð áhrif á háhyrningana. Svo slæm áhrif reyndar að 65% allra kálfa háhyrninga á ferðamannastöðum við Nýja-Sjáland deyja drottni rétt eftir fæðingu. Sterkar vísbendingar eru um að það helgist að stórum hluta af þúsundum ferðamanna sem svamla kringum vöðurnar í þeirri von að fá góða selfí til að monta sig á samfélagsmiðlum.
Eðli máls samkvæmt er öll truflun af hinu verra þegar ungviði kemur í heiminn. Allt áreiti á þeim tíma er neikvætt og gildir þá einu hvort móðirin dvelur í rúmi á Landspítalanum eða í rúmsjó við Nýja-Sjáland.
En auðvitað er góð selfí þess virði að þessum dásamlegu dýrum fækkar jafnt og þétt og verða innan tíðar jafn algeng og risaeðlurnar…







