Ekkert verður af því að kínverska flugfélagið Juneyao hefji ferðir hingað til lands frá Helsinki en þær ferðir áttu að hefjast í lok mars. Flugfélagið hefur tímabundið frestað þeim ráðagerðum vegna kórónafaraldursins.

Juneyao dregur í land með Íslandsferðir að svo stöddu.

Samkvæmt fréttatilkynningu flugfélagsins hefur öllum nýjum flugleiðum til og frá Evrópu verið skotið á frest vegna faraldursins sem skekið hefur Kína svo um munar undanfarnar vikurnar. Flugfélagið hugðist bæta Dublin, Manchester og Keflavík við dagskrá sína.

Í Kína virðist faraldurinn í rénun ef marka má opinberar tölur (sem oft er ekki að marka frá þessu ágæta landi)  en á móti kemur að veiran virðist vera að gera sig gildandi mun víðar og þar á meðal í Evrópu.

Það hefur vitaskuld áhrif á ferðalög tugmilljóna og kínverska flugfélagið dregið í Ísland að svo stöddu.