Græðgi Icelandair ríður ekki við einteyming eins og fyrri grein okkar fjallaði um. Eflaust töluvert af hjónum með næga peninga milli handanna til að greiða milljón krónur til að fljúga með börnum sínum tveimur til Orlando í vetur en það á ekki við um meirihluta landsmanna. Og þetta er flugfélag sem græðir á að nota nafnið okkar allra…
Við slíkri græðgisvæðingu er aðeins eitt að gera gott fólk og það að leita hófanna annars staðar. Það gerðum við og fundum þetta á sama tímabili og flug fram og tilbaka kostar rúmlega TVÖ HUNDRUÐ ÞÚSUND KRÓNUR með Icelandair.
>> Tveggja vikna dvöl í Kissimmee og St.Pétursborg í Flórída fram til mars á næsta ári á tilteknum dagsetningum frá Bretlandi með British Airways. Tilboð þetta frá bresku ferðaskrifstofunni Ocean Florida er æði gott en á mann miðað við tvo saman kostar pakkinn 175 þúsund krónur plús fargjald til London. Þannig dvelur fólk í sól og hita og hlær að farþegum Icelandair sem borga tvö hundruð plús og eiga enn eftir hótel og meðlæti. Bóka verður fyrir lok september.
>> Ferðaskrifstofan On the Beach býður ýmis boð til Orlando. Meðal annars þennan fjórtán daga pakka í okt/nóv á skítsæmilegu hóteli fyrir 106 þúsund á mann miðað við tvo saman. Það er flug og gisting fyrir þennan pening plús flug til og frá London en samt nær fólk aftur að hlæja að þeim er keyptu með Icelandair á sama tímabili.
>> Svo má ekki gleyma British Airways sem býður einnig fjölmarga kosti frá London til Orlando. Við finnum strax viku í Kissimmee á sæmilegu hóteli með flugfélaginu breska í nóvember fyrir 99 þúsund krónur á mann plús ferðir héðan til London. Fjölmargt annað í boði.
* Þetta fundum við á örfáum mínútum og þó flug til London sé kannski ekki á dagskránni er það sannarlega þess virði ef það sparar tug- og jafnvel hundruð þúsunda króna. Frekari leit er þess virði ef ykkur langar á annað borð.







