Ef við hefðum dauðar lýs á höfði væru þær að falla unnvörpum þessa stundina. Það gerist að sjálfu sér þegar venjulegt fólk með hár rekst á fargjöld Icelandair til Orlando í október eða nóvember. Þangað kemst enginn nema fuglinn fljúgandi undir TVÖ HUNDRUÐ ÞÚSUND KRÓNUM með þessu flugfélagi okkar.

Sorrí Stína, Kári, Alexandría og Jónatan en slík verðlagning er algjörlega út úr heimskortinu. Skiptir þá engu hvort þú fáir frítt egg og beikon, Moggann, ís með Amaretto og fótanudd alla leiðina á fyrsta farrými. Þetta er rugl!

Venjulegt launafólk á Fróni getur gleymt ferðinni til Orlando á því verði sem Icelandair er að bjóða

Venjulegt launafólk á Fróni getur gleymt ferðinni til Orlando í vetur á því verði sem Icelandair er að bjóða