Það er ekkert auðvelt að vera Íslendingur. Erlent kjöt sagt stórhættulegt en samt er slíkt ekkert merkt sérstaklega í búðum og merkilegt reyndar að svo hættulegar vörur séu seldar í búðum.
Jafnvel þó við dettum um feitan rammíslenskan kjötbita kostar sá mánaðarlaun verkamanns á Siglufirði. Stutt í að við förum að kaupa í matinn á raðgreiðslum.
Það heldur ekkert auðvelt að vera svangur Íslendingur á leið erlendis. Við mætum fyrir allar aldir í flug og höfum gert í áraraðir til þess eins að flugfélögin geti nú nýtt vélar sínar 24 stundir á sólarhring. Engu flugfélagi virðist detta í hug að kannski vilja Íslendingar bara sofa út og mæta eiturfersk fyrir brottför um hádegisbil eða svo. Erlendis hins vegar velur fólk um brottfarartíma enda samkeppni þar fullorðins og miðast við neytendur en minna um flugfélögin.
Í flugstöð Leifs Eiríkssonar heitins fást samlokur sem bæði við og aðrir höfum fjallað um áður. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að fólk sé svangt og þyrst klukkan fimm, sex eða sjö á morgnana eftir svefn sem þjakaður er af stressi fyrir ferðina.
En þótt heita eigi að í flugstöðinni sé allt tax-free gildir það nú ekki um matinn. Sem, nota bene, Icelandair er líka að selja þér undir öðrum merkjum. Hér er þjóðráð að verðleggja allt upp í rjáfur því asnarnir sem langar erlendis komast ekkert annað eftir að í flugstöðina er komið.
Þess vegna fást þar sömu samlokur og þú færð í Bónus á 200 krónur minnst tvöfalt meira og átta til níu hundruð krónur fyrir beisik fransbrauðssamlokuna með hangikjöti er algengt. Vissulega ekki ókeypis að leigja svæði í stöð Leifs Eiríkssonar en að álagning þurfi að aukast úr 200 prósentum og upp í 7000 prósent eða svo er vægast sagt undarlegt.
Sumir sársvangir einstaklingar gætu hugsað sem svo að best sé að geyma samlokukaup í Leifsstöð og bara fá sér eitthvað á leiðinni út. Það er nefninlega oft svo að þrátt fyrir góðan ásetning gengur fólki oft illa að sofna í vélum á leið til London, Köben eða Osló eða Alicante. Þetta eru stuttar flugleiðir og ekki fyrr er dúr komin á auga en flugþjónar mæta með varning til að pranga inn á þig. Fyrir utan að þú lentir í miðsæti við hliðina á tveimur ansi þéttvöxnum og málhöltum Bandaríkjamönnum.
Icelandair veit líka að eins og í Leifsstöð hefur viðskiptavinurinn ekkert val um neitt ef sá er svangur. Jú, nema valið um að borða eða svelta heilu hungri. Kannski þess vegna kostar samlokan um borð hjá flugfélaginu ENN MEIRA en í Leifsstöð. Einföld samloka hjá sama fyrirtæki og þurfti stjórnvöld til að skikka fólk til að vinna fyrir sig heimtar 1150 krónur fyrir skitna samloku. Sú samloka ekki einu sinni úr gulli.
Fari rúmur þúsundkallinn fyrir skitna samloku fyrir brjóst lesenda er ekki síður fróðlegt að vita hvað nett dolla af grænmetisnúðlum kostar. Dolla af slíku góðgæti kostar 550 krónur og er sami pakki og þú greiðir 120 kall fyrir í Bónus. Og hvernig hljóma eins dags gamlir ör-hamborgarar á tæpan 1.400 kall? Það er sem sagt gamall hálfur upphitaður hamborgari á sama verði og máltíð með alles hjá Búllunni og Hamborgarabúllunni. Þrefalt meira en hjá eldheitur McDonalds í flestum evrópskum borgum.
Verst kannski er að ef þú ætlar að kvarta yfir rányrkju er fólki hótað. Vertu stilltur eða lögreglan bíður á áfangastaðnum.
Fararheill vill benda stjórnarmönnum Icelandair á, að fyrir utan milljónirnar sem þeir hafa í laun, er flug með félaginu almennt mjög dýrt. Jafnvel þó sumir hafi ekki efni á öðru en almenningsfarrými er engin ástæða til að kreista fólk til blóðs yfir samlokum og jógúrt. Það lýsir mannvonsku og græðgi út fyrir öll eðlileg mörk. Fyrir utan þá staðreynd að það er komin feit samkeppni á flestum flugleiðum. Og þið ekkert í uppáhaldi eftir einokunarverð um áraraðir…









