Hmmm! Ferðavefurinn Túristi.is þykir móðins hjá fjölmiðlum landsins sem allir vitna í miðilinn reglulega. En er ekkert skrýtið að vefurinn er aðeins með vegvísa til áfangastaða Icelandair?

Ferðavefur hvers blaðamenn hafa aðeins ferðast til átta áfangastaða Icelandair… Skjáskot
Vísir, Rúv, Fréttablaðið, DV, Viðskiptablaðið, Kjarninn, Stundin og Mbl birta reglulega greinar frá hinum oft ágæta ferðavef Túrista.
Kalt vatn rennur nú yfirleitt niður bak okkar hér bara við nafnið eitt og sér enda er orðið túristi neikvætt mjög í alla staði. Túristar eru fífl og fláráðar en ferðamenn ekki.
Burtséð frá því vekur töluverða athygli að á vefnum hafa verið auglýsingar frá Icelandair frá upphafi og merkilegt nokk virðist túristi aðeins hafa ferðast til átta áfangastaða. Sömu átta áfangastaða og Icelandair býður beint flug til…
Engu að síður gleypa fjölmiðlar við efni frá túrista eins og það sé heilagur gralbikar. Og svo dirfast þeir að kalla sig fjórða valdið 🙂







