Það er oft svo að bágur fjárhagur kemur oft í veg fyrir að fólk ferðist út í heim. En þessa stundina er borð fyrir báru fyrir jafnvel blankasta fólk að taka skrefið út í heim.

Fantagott gistitilboð Hostelworld
Það helgast af sérdeilis frábærum gistitilboðum hostelvefsins Hostelworld sem selur gistingu í tugþúsundum gistihúsa um víða veröld.
Vefurinn sá er nú með sérstaka kynningu og á meðan býðst fólki að gista á hinum ýmsu hostelum í heiminum fyrir svo mikið sem 14o krónur per nótt miðað við gengi dagsins.
Já, þú last þetta rétt. Næturgisting á 140 krónur í Kaupmannahöfn, Ríó de Janeiró, San Diego, Cali og á tugum annarra staða.
Þetta er of gott til að vera satt. Eitthvað hlýtur nú að hanga á spýtu hér?
Reyndar er einn hængur eða tveir sé grannt skoðað. Sum hostel sem þátt taka eru eingöngu ætluð ungu fólki (undir 24 ára) og tilboðið nær aðeins fram til 7. desember. Gista verður fyrir þann tíma til að notfæra sér þetta príma verð. Svo þarf vart að taka fram að um kojugistingu er að ræða í öllum tilvikum.
Sjálfsagt að kíkja á þetta. Hafðu í huga að hostel nútímans eru velflest miklu betri en slík gistihús voru hér áður. Nánar hér.
Og ef þér líkar ekki hostelgisting eru hótelin hjá okkur ekki mikið dýrari hér að neðan.







