Tilkynnt var um það í gær að bandaríska flugfélagið Delta Airlines ætlaði að fjölga flugleiðum til Íslands á næsta ári. Af því tilefni auglýsir flugfélagið sérstakt „kynningarverð“ vestur um haf fram til áramóta. En hversu merkilegt „kynningarverð“ er það?

Gott verð? Ekki slæmt en aðrir bjóða mun betur. Skjáskot
Í ljós kemur að þau tilboð Delta eru með þynnsta móti samkvæmt lauslegri úttekt Fararheill. Á vef Delta er sérstaklega tiltekið verð á flugi til New York fram og aftur niður í 64.715 krónur. Sem kann að fýra upp í einhverjum þarna úti enda sæmilegt verð til New York. Þó aðeins þangað til þú gerir verðsamanburð við Icelandair sem einnig flýgur til New York. Icelandair er nefninlega að selja flug fram og aftur sömu leið á fjölmörgum dagsetningum á næsta ári niður í 53.055 krónur.
Það verðmunur um rúmar tíu þúsund krónur plús það að Icelandair leyfir vesturförum að grípa tvær töskur meðferðis en Delta blæðir aðeins í eina. Aukataska til hjá Delta bætur tíu þúsund krónum ofan á allt saman.
Það er hins vegar ekki svo að allt sé svo með öllu illt. Með Delta er komist á ágætu verði alla leið til Orlando á Flórída eða 67.625 krónur en það verð einnig í boði á mörgum dagsetningum. Það hljómar spennandi kostur þegar tekið er tillit til að Icelandair selur sínar Orlando ferðir lægst kringum 78 þúsund krónur fram og aftur. En aftur hér bliknar tilboð Delta því þá leiðina þarf að millilenda á JFK í New York og hanga þar nokkrar klukkustundir í bið báðar leiðir. Sé haft í huga að tími er peningar er því 67 þúsund króna pakkinn ekki jafn sexí og ella.
En til að gæta sanngirni þá var aldrei líklegt að Delta gæti boðið safaríka pakka. Dollarinn bandaríski hefur ekki verið sterkari um áraraðir og það takmarkar mjög getu bandarískra flugfélaga til að bjóða pakka sem bragð er að.







