Nú um áramótin mun Icelandair, öflugasta fyrirtæki landsins, skipta um olíufélag. N1 dettur út sem söluaðili og inn kemur Skeljungur. Slík skipti væru fíflaleg í meira lagi ef nýi samningurinn er ekki betri en sá gamli. Ekkert bendir þó til að viðskiptavinir Icelandair komi til með að njóta þess með neinum hætti.

Ekkert bendir til að betri eldsneytissamningar Icelandair skili sér til neytenda.

Ekkert bendir til að betri eldsneytissamningar Icelandair skili sér til neytenda.

Við forvitnuðumst um þetta hjá upplýsingafulltrúa Icelandair. Að því gefnu að Icelandair sé að fá eldsneyti á lægra verði eftirleiðis mun það þá skila sér í lægra eldsneytisgjaldi? Mun það gjald jafnvel falla alveg niður eins og margir hafa kallað eftir?

Skemmst er frá að segja að engin komu svörin. Sem þykir nú benda til að ekkert slíkt standi nú til á þessum bænum. Upplýsingafulltrúanum þykir spurningin kannski fáránleg.

En hún er kannski ekki svo fáranleg þegar haft er í huga að sérstakt eldsneytisgjald er lagt á alla farþega „til þess að koma til móts við kostnaðarauka af heimsmarkaðsverði eldsneytis“ eins og kemur fram á vef flugfélagsins.

Gott og blessað að setja örvæntingarfullt aukagjald á alla farþega þegar heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkar von úr viti. En þá er líka rétt að fella það niður þegar botninn dettur úr olíutunnunni eins og verið hefur raunin nú um fjórtán mánaða skeið. Í júlí 2014 kostaði tunnan  125 dollara en hrapaði þá niður undir 60 dollara þar sem verð hefur að mestu haldist síðan.

Flugfélagið hefur lækkað gjald sitt einu sinni á þessum tíma rétt fyrir áramót 2014 og viðkvæði flugfélagsins hefur verið að neðar verði ekki komist vegna framtíðarskuldbindinga. Það er að segja að stór hluti eldsneytiskaupasamninga Icelandair eru framvirkir til að tryggja sama verð langt fram í tímann. Þannig græðir flugfélagið ef eldsneyti hækkar á þeim tíma en tapar ef það lækkar.

En þegar gerður er nýr samningur um eldsneytiskaup við Skeljung þá hljóta eldri framvirkir samningar við N1, að detta dauðir niður um áramótin. Hlýtur það ekki að skila sér til viðskiptavina að kaupa eldsneyti á 60-80 dollara eins og nú er fremur en 120 til 130 dollara per tunnu þegar síðasti eldsneytissamningur Icelandair var gerður við N1?

Nema kannski fyrir þá sök að eldsneytisgjaldið, þó það hafi verið lækkað um helming á sínum tíma, er að rúlla geysilegum fjármunum inn í flugfélagið. Nái flugfélagið þremur milljónum farþega á yfirstandandi ári, eins og líklegt þykir og hver og einn þeirra greiðir 9.000 króna eldsneytisgjald* eru litlir 27 milljarðar króna að detta inn um lúguna hjá Icelandair fyrir það eitt og sér. Það er dágóð upphæð fyrir „aukagjald.“

* Eldsneytisgjald er mismunandi eftir flugleiðum. Lægst 6.900 krónur og hæst 12.200 krónur aðra leið. Við tókum svona gróft miðgildi en þó nær ódýrari pakkanum.