Í um rúmlega vikutíma hefur ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýst sértilboð sín til Kanaríeyja nokkuð grimmt. Fram til klukkan 11 í gærmorgun, 21. mars, kostaði flugfar til Kanarí 59.900 krónur fram og til baka og vikurferð með sæmilegu hóteli fékkst á 79.900 krónur.
Sætin sem Heimsferðir voru þarna að bjóða voru lokasætin í ferð sem hefur verið auglýst lengi og í stað þess að koma almennilega fram við áhugasama og koma í veg fyrir að fljúga með tóm sæti til Kanaríeyja ákvað ferðaskrifstofan að bíða með að lækka verð sín á sætunum þangað til einum og hálfum sólarhring fyrir brottför klukkan ellefu í gærmorgunn.
Þá fengu viðskiptavinir á póstlista Heimsferða skeyti um lækkun á verðinu og fékkst nú flugsætið fram og til baka fyrir 39.900 eða 20 þúsund krónum ódýrara en ella. Var pósturinn sendur aftur síðar þann dag en án árangurs. Fararheill hefur heimildir fyrir að ekki er fullbókað í ferðina sem fer í fyrramálið.
Í stað þess að bíða lon og don með að bjóða umrædda ferð á eðlilegu verði og fylla vélina fer sú af stað í fyrramálið, 23. mars, með nokkur laus sæti og enginn græðir.
Þess má geta að SÉRTILBOÐ Heimsferða EFTIR aukaafsláttinn er jafndýrt og hefðbundið fargjald með Norwegian frá Osló til Kanaríeyja.






