Farnar eru að birtast í íslenskum fjölmiðlum auglýsingar bandaríska Delta flugfélagsins sem hefur áætlunarflug hingað til lands með vorinu. Ólíkt öðrum erlendum flugfélögum sem auglýsa hér á landi þykir Bandaríkjamönnunum engin ástæða til að auglýsa á öðru en sínu eigin tungumáli.
Auglýsir flugfélagið nú „Fly to New York JFK and on to 35 destinations across America“ í fjölmiðlum og geta jú velflestir landsmenn skilið hvað þar er verið að auglýsa. Segir þetta engu að síður töluvert um flugfélagið því heila eina mínútu tekur að snara þessari auglýsingu yfir á hið ylhýra.
Fararheill.is mun innan tíðar birta úttekt á verðum Delta samanborið við önnur flugfélög en við fyrstu sýn virðast fjargjöld þeirra vart samkeppnishæf við það sem fyrir er.






