Tíðindi

Hótelbókanir með farsímum í boði fljótlega

  25/03/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Ef marka má símafyrirtækin er fátt sem ekki er hægt að gera með nýjustu símagræjunni hverju sinni. Alls kyns leikir, tól og tæki í nýjum símum gera að verkum að enginn þarf lengur að fara á fætur á morgnana til að taka þátt í lífinu svo lengi sem viðkomandi sé með nýjustu græjur.

Farsímar nýtast ferðafólki á framandi slóðum vel því í þeim nýjustu má fá bæði góð kort og lesa greinar um viðkomandi stað án mikillar fyrirhafnar. Sumir hafa jafnvel innbyggð gps tæki svo að enginn þarf lengur að villast neins staðar.

Hingað til hefur þó vantað að ekki hefur verið hægt að panta hótelherbergi gegnum símann en það horfir til batnaðar. Ferðavefurinn Expedia hyggst bjóða þessa þjónustu í næsta mánuði bæði fyrir iPhone síma Apple og Android síma annarra símaframleiðenda.

Þetta nýtist kannski ekki öllum en sé verið að þvælast um heima og geima án sérstaks áfangastaðar eins og ævintýrafólk gerir gjarnan er þetta málið. Engin þörf lengur að finna nettengingu eða netkaffihús heldur panta bara með símanum áður en komið er á áfangastað.