Fáir, ef nokkrir, hafa misst af auglýsingaherferð flugfélagsins Iceland Express undanfarnar vikur í útvarpi, blöðum og sjónvarpi þar sem fólk er hvatt til að taka flugið í sumar og komast í sólina í Evrópu fyrir aðeins 15.900 krónur. Úttekt Fararheill leiðir í ljós að eingöngu þrjár flugferðir eru í boði á þessu auglýsta verði flugfélagsins í sumar.
Eru umræddar þrjár ferðir allar í boði um miðjan ágúst og alls ekki sólina ef út í það er farið því áfangastaðurinn í öllum tilvikum er Edinborg í Skotlandi. Er það stysta flugleið flugfélagsins.
Þá vekur og athygli að ódýrustu fargjöldin mjög víða finnast aðeins seint í ágústmánuði.
Fararheill hefur yfirfarið allar ferðir flugfélagsins í sumar og hér að neðan eru allra ódýrustu verðin með sköttum til áfangastaða flugfélagsins.
* Úttektin var gerð milli kl. 19 og 20 þann 28. mars. Hafa skal í huga að farmiðabreytingar gerast ört en yfirleitt alltaf upp á við en ekki niður. Neðangreind verð eru með sköttum og miðast við aðra leiðina frá Íslandi.
Ódýrast til Alicante: 28.ágúst 34.645 krónur
Ódýrast til Barcelona: 24. ágúst 34.645 krónur
Ódýrast til Álaborgar: 29. júní 28.601 krónur
Ódýrast til Basel: 27. ágúst 33.745 krónur
Ódýrast til Berlínar: 23. ágúst 24.341 króna
Ódýrast til Billund: 9. júlí 25.841 króna
Ódýrast til Kaupmannahafnar: 3. júní 22.305 krónur
Ódýrast til Edinborgar: 15. ágúst 15.900 krónur
Ódýrast til Frankfurt: 23. ágúst 24.341 króna
Ódýrast til Friedrichshafen: 14. júlí 38.721 króna
Ódýrast til Gautaborgar: 22. ágúst 20.152 krónur
Ódýrast til Kraká: 9. júlí 33.195 krónur
Ódýrast til London: 27. maí 19.295 krónur
Ódýrast til Parísar: 17. júní 27.401 króna
Ódýrast til Stokkhólms: 24. ágúst 17.407 krónur
Ódýrast til Varsjár: 13. júní 33.201 króna
Ódýrast til Zurich: 9. júlí 40.343 krónur






