Meðan þeir sem eldri eru láta sig dreyma um kósí íbúð með svölum og útsýn yfir ströndina á Spáni eru þeir sem yngri eru lítið að spá í öðru en djammi og stuði frameftir nóttu. Þá stendur einn staður framar öðrum.
Allir gleðipinnar þekkja Ibiza en eyjan sú hefur aldeilis gengið í endurnýjun lífdaga síðustu árin og er nú jafnvel meiri partístaður en nokkru sinni áður.
En þangað er ekkert rosalega einfalt að komast frá Íslandi. Aðeins er flug héðan til Alicante og Barcelona og frá þeim báðum tekur hálfan sólarhring hið minnsta að koma sér yfir til Ibiza.
En nú er önnur leið í boði og það tiltölulega ódýrt. Með því að bóka flug til Edinborgar er nú hægt að komast áfram þaðan til Ibiza með British Airways og þegar þetta er skrifað fæst tveggja vikna ferð á háannatíma í júlí kringum 65 þúsund krónur fram og aftur. Auðvitað einhver biðtími í Edinborg en hún er ekki slæm á neinn hátt og gæti jafnvel gert ferðina enn skemmtilegri.








