Látum okkur nú sjá. Hvar er bæði hægt að komast ódýrt í netta jólastemmningu á góðum aðventumarkaði og jafnframt keypt einhverjar jólagjafir á góðum afslætti fyrir þessi jólin?

Jólamarkaðurinn í Belfast ekki jafn heillandi og margir aðrir slíkir en verðlag í verslunum hér ætti að hjálpa. Mynd visit Belfast
Einn staður sérstaklega sýnist okkur falla undir allar þessar skilgreiningar og þú líklega ekki með þann stað á listanum þínum. Belfast í Norður-Írlandi.
Vissulega ekki fyrsta borgin sem upp kemur þegar jólamarkaðir og jólagjafir koma upp í hugann. En hér er hinn sæmilegasti aðventumarkaður sem opnar þann 15. nóvember og er opinn alveg fram að jólum.
Jafnvel þó markaðurinn sá sé ekki á pari við þessa stóru og flottu í Mið-Evrópu þá er þrennt í viðbót sem gæti haft áhrif. Norður Írland er breskt yfirráðasvæði og verðlag hér í verslunum tekur mið af því. Sem merkir að heilt yfir kosta vörur hér 28 prósent minna en í Reykjavík. Það er sem sagt ódýrara að versla hér en í Glasgow í Skotlandi.
Annar plúsinn er hversu stutt er að fara. Tveggja stunda flug og þú ert á áfangastað og þar sem Belfast er ekki ferðamannamekka í nóvember eða desember er mannfjöldi á götum úti ekki yfirþyrmandi.
Þriðji og síðasti plúsinn er hversu ódýrt er að fljúga til Belfast. Á vef easyJet sem flýgur þangað beint má nú finna flug fram og aftur 4. til 7. desember, ein góð helgarferð, fyrir röskar fjórtán þúsund krónur. Já, það er báðar leiðir en án farangurs. Hentu tösku með og verðið hækkar um sjö til átta þúsund krónur eða svo.
Að punga út 20 þúsund krónum fyrir góða jólahelgi í Belfast er án alls efa ódýrasti mátinn að komast í stemmningu fyrir þessi jólin. Til samanburðar er Wow Air að bjóða ferðir til Dublin. Lægsta fargjald þangað sem við finnum þegar þetta er skrifað kostar 29 þúsund krónur án farangurs. Bættu tösku við þar og flug fram og aftur með Wow Air kostar manninn 40 þúsund. Það er 20 þúsund krónum dýrara og munar um minna.







