Kaffi, kleinur, sóláburður, vatn, bjór, vín, matur og tóbak. Brúki ferðafólk eitthvað af þessu reglulega við dvöl í útlöndum þá er Spánn fyrirheitna landið árið 2013. Spánn er aftur, annað árið í röð, ódýrasti dvalarstaðurinn með tilliti til þess hvað ofangreindir hlutir kosta.

Spánn er einfaldlega ódýrasti dvalarstaður ferðafólks í Evrópu.

Spánn er einfaldlega ódýrasti dvalarstaður ferðafólks í Evrópu.

Breska Póststofnunin hefur birt sína árlegu verðkönnun á nokkrum helstu nauðsynjum sem ferðafólk kaupir ótt og títt á ferðalögum um heiminn. Sannarlega nytsamar upplýsingar því mörgum hættir til að gleyma öðrum kostnaði en flugi og gistingu þegar verið er að skipuleggja ferðalögin heima í eldhúsi. En líklega skjagar annar kostnaður í ferðinni vel upp í það sem greitt er fyrir ferðalagið sjálft og þak yfir höfuðið.

Vitaskuld má deila um nytsemi eða áreiðanleika slíkrar könnunar enda aðeins tekið verð á einum einasta stað í hverju landi fyrir sig. Hún gefur þó ákveðnar vísbendingar enda í öllum tilvikum um vinsæla ferðamannastaði að ræða.

Í körfunni sem um ræðir er nákvæmt verð á eftirtöldu: kaffibolli á kaffihúsi, flaska af bjór á bar, glas af gosi á bar, vínglas á bar, 1,5 lítri af ökelduvatni úr matvörubúð, 200 ml sóláburður, vindlingapakki og þriggja rétta máltíð með víni á veitingastað.

Þessi pakki samanlagt er ódýrastur á Spáni og Sri Lanka og hefur það ekkert breyst frá fyrra ári. Ekki er heldur amalegt að verð lækkar örlítið á Spáni milli ára en í töflunni má sjá verð fyrir ári innan sviga.

EVRÓPA

  1. Spánn – Costa del Sol  7.160 krónur (7.285)
  2. Tékkland – Prag 7.760 krónur (7.652)
  3. Búlgaría – Sunny Beach 8.940 krónur ( 7.657)
  4. Portúgal – Algarve 9.030 krónur (9.801)
  5. Ungverjaland – Búdapest 10.200 krónur (8.801)
  6. Tyrkland – Marmaris 10.480 krónur (11.626)
  7. Kýpur – Ayia Napa 10.860 krónur (10.272)
  8. Grikkland – Korfu 11.400 krónur (13.853)
  9. Króatía – Pula 12.500 krónur (11.277)
  10. Malta – St.Julians 12.550 krónur (12.758)

Heilt yfir allan heiminn eru tíu ódýrustu dvalarstaðirnir þessir:

  1. Spánn
  2. Sri Lanka
  3. Tékkland
  4. Indónesía
  5. Víetnam
  6. Búlgaría
  7. Portúgal
  8. Mexíkó
  9. Ungverjaland
  10. Tyrkland

Og þessir tíu staðir eru þyngstir á pyngju ferðafólks þetta árið:

  1. Suður-Kórea
  2. Ástralía
  3. Nýja-Sjáland
  4. Kína
  5. Kanada
  6. Dubai
  7. Máritanía
  8. Singapore
  9. Jamaíka
  10. St. Lúcia

Verðkönnunin í heild sinni hér.

* Verð fært yfir í krónur miðað við miðgengi þann 2. febrúar 2013.