Tiltölulega lítill verðmunur kemur í ljós á nokkrum vinsælum vörum sem seldar eru tollfrjálst um borð í vélum Icelandair og Wow Air.

Lítill verðmunur á þeim vörum Wow Air og Icelandair sem seldar eru tollfrjálst í flugi, Merkir það eitthvað sérstakt?
Bæði félögin gefa reglulega út bæklinga um vörur þær sem þau selja án allra tolla um borð í vélum sínum meðan á flugi stendur.
Þar kennir jafnan margra grasa þó skartgripir og snyrtivörur hvers kyns séu þar fyrirferðamest eins og víðar.
Slíkur samanburður er ekki alveg sá einfaldasti þar sem vörur þær sem flugfélögin bjóða til sölu eru afar mismunandi og auðvitað ekki hægt að bera saman.
Það tókst samt í neðangreindum tilfellum en í þeim öllum er um að ræða vörur frá íslenskum fyrirtækjum og hægur vandi að komast að því hvað þær vörur kosta almennt úr verslunum.
Söluaðilar greiða hvorki tolla né skatta af vörum seldum með þessum hætti og því má spyrja hvort verðlagning sé eðlileg eður ei enda virðist munurinn fyrir leikmann að minnsta kosti vera heldur lítill.
Sem dæmi kostar dolla af Blue Lagoon Silica Mud Mask 7.900 krónur með hæstu mögulegu álagningu í verslun Bláa lónsins í Grindavík. Hjá flugfélögunum fæst þessi vara á rétt tæpar sex þúsund krónur.
Eðlilegt?







