Kannski er þetta ein ástæða þess að hlutabréf Icelandair falla hraðar en skinn af holdsveikum manni. Í ljós kemur að breska flugfélagið British Airways er oft á tíðum að bjóða töluvert lægra verð á ferðum milli London og Flórída næsta vetur en Icelandair býður frá Keflavík. Það þrátt fyrir að flugið til og frá London sé nokkuð lengra en frá Keflavík.

Ekkert vantar á flottar auglýsingar hjá Icelandair. Verðið hins vegar varla samkeppnishæft…

Flug fram og aftur til Flórída frá London tekur gróflega átján klukkustundir fram og aftur. Flug milli Keflavíkur og Flórída tekur allajafna um eða undir sextán klukkustundum. Þarna munar alltaf tveimur klukkustundum á flugi.

Alles gut með það. Nema ef vera skyldi að breskt flugfélag sem þarf að fljúga tveimur klukkustundum lengur en Icelandair á svipaðar slóðir selur sætin á töluvert lægra verði en íslenska flugfélagið!!!

44 þúsund krónur með BA til Miami í febrúar á næsta ári.

Amm. Þú last þetta rétt. Flugfélag sem þarf að kaupa nægt eldsneyti til að fljúga tveimur klukkustundum lengur en rellur Icelandair eru á sama áfangastað, er að bjóða töluvert lægri fargjöld.

Nú kann einhver að segja að Icelandair sé nú töluvert betra flugfélag en British Airways og slíkur verðmunur því salla eðlilegur.

En hjá Icelandair er lágmarksverðið tæplega þrettán þúsund krónum hærra. Tóm græðgi á þeim bænum.

Það helber della.

Jú, víst tala flugþjónar enn íslensku svo þeir skilja þegar þú vilt fá ábót á koníakið og vissulega greiðir Icelandair hreint ágæt laun á heimsmælikvarða. En þá eru plúsarnir að mestu upptaldir. Icelandair er að fljúga eldgömlum rellum sem margar hverjar eru ennþá með öskubakka í sætisörmum. Icelandair er líka að greiða miklu minna í eldsneyti til Flórída en BA frá Englandi og eldsneyti er annar stærsti kostnaðarliður flugfélaga.

Vissulega er Icelandair að fljúga til Orlandó en British Airways til Miami í ofangreindu dæmi. Samt sem áður á að vera ómögulegt fyrir flugfélag að bjóða miklu betri kjör en næsta flugfélag ef flugið er tveimur stundum lengra en hjá hinu síðarnefnda.

Látum ekki bjóða okkur svona okur. Væri allt eðlilegt væri Icelandair að bjóða fargjöld til Flórída í byrjun næsta árs á 15 prósent lægra verði en breska flugfélagið. En forráðamenn íslenska flugfélagsins telja greinilega að þeir geti blóðmjólkað landann eins og eins og gert var þegar samkeppni var engin hér um síðustu aldamót.

Settu ferðir með Icelandair á ís. Allavega þangað til flugfélagið fer að sýna okkur lágmarks lit og þjónustu.