„Forstöðumaður greiningardeildar Arion banka segir Icelandair Group þurfa að vinna varnarsigur á þriðja fjórðungi til að afkomuspá félagsins gangi eftir.”

Krakkanir á ritstjórn Fréttablaðsins reyna þennan daginn að rýna í ástæður þess að gengi hlutabréfa Icelandair er verra en ástand Helga Björns á lokadegi landsmóts hestamanna. Til þess að varpa ljósi á málið er dreginn fram forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, Stefán Broddi Guðjónsson.

„Uppgjör Icelandair olli vonbrigðum,“ segir Stefán Broddi, „og afkoman reyndist enn lakari en væntingar markaðarins stóðu til.“

Ókei, hljómar ekki óeðlilega. Hver sá fjárfestir sem átti von á að hörmulegur stjóri Icelandair gæti breytt töpuðum leik í unninn á ekkert erindi í fjárfestingabransann.

En Fréttablaðið er ekki mikið að varpa ljósi á hver þessi forstöðumaður Arion banka er og hefur sér til ágætis. Hvað gerir manninn að sérfræðingi?

Í ljós kemur við gúggl að forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, áður Kaupþings, starfaði fyrir Hrunið hjá fyrirtækjunum Exista og Straumi Fjárfestingarbanka og var sérfræðingur hjá Íslandsbanka! Ekki þarf að minna nokkurn vitiborinn einstakling á að öll þrjú fyrirtækin fóru yfir um við Hrunið.

Dabbadona. Einstaklingur sem er greinilega handónýtur að leggja mat á nokkurn skapaðan hlut eins og hrun heils lands, er forstöðumaður greiningardeildar Arion banka. Úff, við nánast finnum lykt af næsta hruni með svona skítaplebba í yfirmannastöðum.

Verra að Fréttablað Jóns Ásgeirs Jóhannssonar, brúkar og kynnir slíka aðila sem „sérfræðinga” jafnvel þó fyrir liggi að þeir virðast hafa verið mökkölvaðir í fleiri ár fyrir Hrunið 2008. Enn verra að þessi aðili skuli fá vinnu hjá banka í dag. Hann ætti með réttu að vera á hnjánum fyrir utan 10/11 að óska eftir vinnu.

En svona er Ísland í dag. Aðili sem vissi varla hvernig átti að klæða sig 2008 og hvað þá spá í spilin er núna forstöðumaður greiningardeildar banka sem fór þráðbeint á hausinn á sínum tíma. Gjörsamlega ekkert að marka spár hans nú frekar en fyrr.