Tíðindi

Óboðleg óstundvísi hjá Iceland Express

  19/02/2011nóvember 23rd, 2014No Comments

Ritstjórn Fararheill hefur ítrekað fjallað um hrapallega óstundvísi breska flugfélagsins Aestreus sem flýgur vélum Iceland Express við litla hrifningu forsvarsmanna. En fátt virðist breytast til batnaðar hjá flugfélaginu og reyndar þvert á móti því tölfræðin í desember og janúar staðfestir að eingöngu 40 prósent allra flugferða IE lenda voru á áætlun.

Er það með allra versta hlutfalli í heiminum samkvæmt Flightstats, sem vaktar stundvísi flugfélaga, og birtir reglulega.

Sjá má á meðfylgjandi töflu hvers kyns er en leitun er að öðru flugfélagi þar sem yfirgengilegar seinkanir mælast í 27 prósent allra flugferða IE í desember og janúar.

Til samanburðar eru vélar Icelandair, sem er þó eingöngu í meðalskussahópnum hvað stundvísi varðar, á áætlun í 70 prósent tilfella yfir sama tímabil. Þó urðu vélar þeirra og farþegar fyrir yfirgengilegum töfum í 9 prósent tilfella þá tvo mánuði sem um ræðir.