Tíðindi

Engir farþegaflutningar með fraktskipum

  18/02/2011nóvember 23rd, 2014No Comments

Sú var tíðin að stöku Íslendingar ferðuðust erlendis með fraktskiptum sem héðan fóru og buðu öll stóru skipafélögin hérlendis upp á slíkt. Svo er ekki lengur og stendur ekki til að breyta því samkvæmt upplýsingum ritstjórnar frá Samskip og Eimskip.

Það hljómar kannski kjánalega að forvitnast enda tíðar flugferðir til og frá og það er snöggtum fljótlegra að taka rellurnar en kúldrast um borð í fraktara dögum saman við misjafnar aðstæður.

Engu að síður á þessi ferðamáti vaxandi vinsældum að fagna erlendis en velflest skipafélög bjóða þetta þó í takmörkuðum mæli sé. Ástæðurnar eru helst þær að slíkt ferðalag er öllu meira ævintýri en að klemma sig niður í þröng rými í flugvélum með misjafnlega yndislega sessunauta og flugþjóna. Svo er tiltölulega ódýrt að þvælast með frökturum fyrir þá sem ferðast með lítið veski og eru ekki á hraðferð.

Á móti kemur að sjólag er misjafnt og yndisleg sjóferðin getur í vetfangi breyst í annað og verra með tilheyrandi uppgangi og jafnvel niðurgangi.