Norræna flugfélagið SAS, Scandinavian Airlines System, er stundvísasta flugfélag Evrópu samkvæmt tölfræði Flightstats sem heldur utan um slíkt fyrir flugfélög hvarvetna í heiminum.
Þessum heiðri deilir SAS með Japan Airlines sem var stundvísast á liðnu ári í Asíu og Alaska Airlines sem hélt tímasetningar best í Norður Ameríku. Auk þess hlutu minni innanlands flugfélög sömu verðlaun.
Þetta merkir að þessi flugfélög héldu áætlun hvað best og lentu á áfangastað hvað oftast á réttum og uppgefnum tíma. Þannig hélt Alaska Airlines áætlun í 87,36 prósent tilfella meðan SAS lék það eftir í 86,47 prósent tilfella.
Bæði þessi flugfélög eru í samstarfi við Icelandair og gilda meðal annars vildarpunktar milli þessara flugfélaga.






