Yfirleitt stendur sem stafur á bók það sem bókunarvefur Icelandair gefur þér upp sem lægsta mögulega verð á flugi. En ekki alltaf.

Lægsta verð á „economy“ farrými hjá Icelandair sagt vera 15.900 krónur. En þegar bóka á farið er lægsta fargjald alls ekki í boði. Raunverð 19.700 krónur sem er 23 prósentum hærra. Skjáskot

Rákumst á merkilegan hlut á bókunarvef Icelandair nýlega og um að gera að hafa augun hjá sér því um kolólöglegan hlut er að ræða samkvæmt neytendalögum. Að því sögðu er ekki alveg ljóst hvort um hrein og bein mistök er að ræða eða hvort þetta er eitthvað trix.

Trixið má sjá hér á skjáskotinu til hliðar. Það er gefið í skyn í flipanum að á viðkomandi dagsetningu sé lægsta mögulega verð á „economy-farrými“ 15.900 krónur.

Ókei, ekkert hræðilegt en ætli fólk sér áfram í bókuninni kemur allt í einu í ljós að það fargjald, economy light, er alls ekkert í boði. Aðeins er hægt að negla „economy standard“ fargjald og það kostar 19.700 krónur eða 23 prósentum hærra en upphaflega er gefið í skyn.

Hvort sem um mistök er að ræða eður ei þá er kolólöglegt samkvæmt íslenskum lögum að auglýsa hlut á tilteknu verði nema geta sannarlega selt vöru eða þjónustu á því verðinu. Og 23% verðmunur er ekkert smotterí…