Ef marka má færslu á twitter þennan daginn er einn aðili að reyna að safna saman hóp óánægðra viðskiptavina Wow Air til að hefja hópmálsókn á hendur fyrirtækinu.

Við hér höfum fjallað allítarlega um herfilega þjónustu Wow Air gagnvart viðskiptavinum. Oft gengur allt upp og þá er Wow Air ekki slæmur kostur fyrir ferðalanga en þegar og ef eitthvað bjátar á virðist fyrirtækið ekki ráða við neitt. Wow Air tekur sér marga mánuði til að yfirfara bótagreiðslur fyrir minnsta vesen og lætur jafnvel fólk sem flugfélagið hefur hent frá borði vegna yfirbókana sitja á hakanum mánuðum saman.

Príma stöff með öðrum orðum og skólabókardæmi um hvernig koma á fram við viðskiptavini (ekki.)

Einn aðili hið minnsta hefur fengið nóg af svo miður góðu og hvetur nú marga þá sem kvarta á tístvef Wow Air að hafa samband með það í huga að hefja hópmálsókn á hendur íslenska flugfélaginu. Ef marka má viðbrögð netverja á twitter hafa að minnsta kosti fjórir sýnt því áhuga síðustu tvo sólarhringa.

Þrátt fyrir skeyti okkar til viðkomandi til að forvitnast um málið hefur ekkert svar borist. En það er auðvelt að geta sér til um hvað slík málsókn, ef af verður, snýst um: Hörmungar þjónustu og margra mánaða bið eftir agnarögn af virðingu og kurteisi til handa þeim er eiga viðskipta við flugfélagið.