Hundrað þúsund krónur duga varla hér heima til að draga andann og hvað þá nokkuð meira en það. Áhugasamir um Suður-Ameríku og ekki síst helsta og besta ferðamannastað Kólumbíu gætu þó glaðst ef þeir eiga hundrað kall til að eyða í vitleysu.

TUI Hollandi er nú að bjóða súperkjör á flugi og gistingu í Cartagena í Kólumbíu. Skjáskot

Cartagena er ekki bara staður á Spáni. Það er líka staður í Kólumbíu en sú síðarnefnda gjarnan nefnd Cartagena de Indias til aðgreiningar frá þeirri spænsku. Og engum blöðum er um að fletta að sú kólombíska er sirkabát áttfalt yndislegri en sú spænska.

Einn úr ritstjórn eyddi tíma í Cartagena hinni kólumbísku fyrir áratug síðan en dvaldi of skamman tíma til að þora að reiða fram vegvísi um borgina. Hún er furðustór þó ekki búi hér margir og hér krökkt af erlendu ferðafólki enda allra bestu strendur landsins í og við borgina.

Toppstaður frá A til Ö. Cartagena í Kólumbíu.

Og nú geta þeir sem þyrstir í kólumbíska stemmningu, plús auðvitað sól og sælu, dúllað sér alla leið þangað og heim aftur fyrir röskar hundrað þúsund krónur!!!

Það helgast af því að ferðaskrifstofan TUI er nú að bjóða flug til og frá Amsterdam í Hollandi plús vikulanga gistingu á fjögurra stjörnu hóteli í Cartagena í júní fyrir svo mikið sem 72 þúsund krónur íslenskar. Þar ofan á þurfum við að bæta flugfargjaldi til og frá Amsterdam en það fæst fram og aftur niður í 30 þúsund þegar þetta er skrifað. Niðurstaðan sú að hægt er að skottast á sólríkar strendur Cartagena alla leið héðan fyrir lægri upphæð en það kostar að fljúga til og hanga í Alicante í vikutíma.

Það er þess virði ef þú spyrð okkur 😉