Þau okkar sem ekki vilja naglfesta okkur niður í skipulögðum ferðum til Kúbu er yfirleitt vandi á höndum. Við þurfum aðrar leiðir en með innlendum ferðaskrifstofum. Góðu heilli finnast líka fyrsta flokks flugtilboð til Kúbu hjá erlendum flugfélögum.

Nokkur hreint ágæt flugtilboð Thomas Cook frá London næstu vikurnar. Skjáskot

Flugfélag ferðaskrifstofunnar Thomas Cook í Bretlandi er að bjóða allnokkur ágæt tilboð til hinna ýmsu áfangastaða sinna, þó flest bjóðist þau með litlum fyrirvara.

Nokkur þeirra má sjá hér til hliðar og óhætt að slefa yfir því úrvali sem bjóðast Bretum umfram okkur. Tólf þúsund krónur til Dalaman eða Antalya í Tyrklandi, tuttugu þúsund krónur til Hurghada í Egyptalandi og síðast en ekki síst; flug til Holguin á Kúbu fyrir heilar sautján þúsund krónur.

Ofan á þetta þurfum við auðvitað að bæta flugi til Gatwick í London en þangað er nú oft komist niður í tíu, tólf þúsund krónur aðra leið. Sem þýðir að fræðilegt er hægt að skottast aðra leið til Kúbu fyrir svo lítið sem 25 þúsund alls eða þetta 50 til 60 þúsund báðar leiðir og það með innritaða tösku plús handfarangur.

Þá á vissulega eftir að kaupa gistingu en komist par eða hjón til landsins fyrir hundrað þúsund krónur er létt verk að verða sér úti um fína gistingu í flestum borgum og bæjum í tvær vikur undir hundrað þúsund krónum í viðbót eins og sjá má á hótelvef okkar hér að neðan.

Það töluvert undir þeim 400 til 600 þúsundum króna sem skipulögð ferð héðan kostar vanalega.

PS: gakktu úr skugga um að Thomas Cook bjóði upp á ferðamannavísa til Kúbu. Ellegar gæti þér verið vísað frá um leið og lent er ef þú ert ekki með slíkt upp á vasann.