Einmitt þegar maður hélt að samkeppnin meðal hótelleitarvéla gæti ekki orðið harðari kemur fram á sjónarsviðið nýr aðili sem hefur á skömmum tíma gert öllum stóru miðlunum stóra skráveifu.

Óhætt að prófa þennan veg áður en gisting vestanhafs er bókuð.

Óhætt að prófa þennan áður en gisting vestanhafs er bókuð.

Eins og lesendum Fararheill ætti að vera kunnugt um skipta hótelleitarvélar tugum og jafnvel hundruðum og allir segjast bjóða bestu kjör á gistingu um víða veröld. Margar bjóða vissulega frábærlega í mörgum tilfellum en engu að síður virðist pláss vera til staðar til að gera betur.

Það sannast með hótelleitarvefnum Travelpony sem litlum fregnum fer af enda auglýsir sá aðili alls ekki neitt. Þeir aðilar láta kostnað sem ella færi í kynningar og auglýsingar renna í vasa notenda með lægri gjöldum og vonast til að betri verð trekki fólkið að. Sem það er að gera. Fáir hótelvefir hafa vakið jafn mikla athygli og ástæðan sú að Travelpony er að takast að bjóða, í mörgum tilfellum, 40 til 60 prósent lægri verð en aðrir.

Það er ekki lítill sparnaður en hængur er á. Hann er sá að vefurinn er lítill og tekur fyrst og fremst til hótela í Kanada og Bandaríkjunum en mun færri kostir í boði annars staðar. Hitt er að Travelpony einbeitir sér að dýrari fjögurra og fimm stjörnu hótelum.

Engu að síður óhætt að haka við þennan og prófa áður en lagt er í hann vestur um haf. Nema þér finnist gaman að eyða miklum fjármunum í hótelgistingu.

Litli Travelpony að standa sig vel í samkeppninni samkvæmt úttekt

Litli Travelpony að standa sig vel í samkeppninni samkvæmt úttekt