Sökum þess hve framboð ferða héðan frá Íslandi yfir sumartímann hefur alla tíð verið takmarkað eru margir rammfastir að hugsa um Spánarferð þegar sumarleyfisferðir ber á góma. Vissulega óvitlaus kostur enda oftast beint flug og ekki reynir á þægindarammann mikið. En hvað ef við segðum ykkur að nú eru í gangi tilboðsferðir til Sri Lanka, Máritíus og Maldives eyja.
Líklegt er að fleiri fjölskyldumeðlimir mæti í myndasýningu eftir ferð til Sri Lanka en Benidorm enda sú fyrrnefnda á pari við Myanmar, rétt að opnast fyrir ferðalög, meðan sú síðarnefnda er útlifað og löngu úrelt fyrirbæri.
British Airways er þessa stundina að bjóða allt að 40 prósenta afslátt á vikuferðum frá Bretlandi til þessara þriggja áfangastaða í maí, júní og fram til 8. júlí.
Með fyrirhyggju má komast til Bretlands fyrir 40 þúsund á mann og þaðan áfram í viku til Sri Lanka frá 120 þúsund krónum á mann. Samtals því 320 þúsund fyrir hjón eða par. Það er ekki hærra en greiða þarf fyrir Benidorm pakkann hjá íslenskum ferðaskrifstofum. Til Máritíus og Maldives eyja er dýrara að fara eða frá 115 þúsund krónum á mann frá London.








