Það er orðið skiljanlegra að Icelandair hafi boðið forsætisráðherra með í jómfrúarferð flugfélagsins til kanadísku borgarinnar Edmonton fyrr í þessum mánuði. Ella er ekki að víst að ráðherrann hefði haft efni á förinni.

Því fer fjarri að fargjald til Edmonton í Kanada næsta sumar sé á viðráðanlegu verði.

Því fer fjarri að fargjald til Edmonton í Kanada næsta sumar sé á viðráðanlegu verði.

Í öllu falli er flug aðra leiðina ekki á allra færi ef marka má verðkönnun Fararheill á fargjaldi Icelandair næsta sumarið. Meðalverð AÐRA LEIÐ í júní, júlí og ágúst er 73.200 krónur.

Það má því ganga út frá því sem vísu að flug fram og aftur rúllar vel yfir hundrað þúsund krónur á mann næsta sumarið og kemur ekki á óvart enda engin samkeppnin á þessari flugleið. Margar greinar hafa verið skrifaðar um hærri fargjöld á einokunarleiðum og Edmonton virðist engin undantekning frá því.

Júnímánuður er besti kosturinn ætli fólk að láta sig hafa túr þrátt fyrir verðbólguverð Icelandair. Allra lægsta fargjaldið sem þar finnst fæst á tæpar 44 þúsund krónur en það fargjald fæst aðeins á einni dagsetningu. Allra ódýrasta fargjaldið í júlí kostar tæpar 48 þúsund krónur og lægsta verð í ágúst rúmar 57 þúsund krónur.

* Lægsta verð alla daga alla mánuði í boði kl. 11 þann 24.mars 2014. Hafa skal í huga að verð breytast hratt. Eingöngu verð en ekki tekið tillit til þjónustu.