Við höfum aldrei áður fjallað um ferðaskrifstofuna Mundo. En það er kannski tilefni til nú þegar annar hver maður er að hugsa um annað og meira en enn eina sálarlausa sólarlandaferð. Lífið er jú of stutt til að láta sólbruna og billega bjóra ráða för.

Lífið er aðeins meira en bjór og bruni á sólarströnd…
Þá er óvitlaust að skottast yfir á heimasíðu Mundo-ferða. Mundo er spænska orðið yfir heiminn og þó vissulega séu ferðalög fólks ekki vistvæn á neinn hátt þá er lífið orðið snautt og innantómt ef við leyfum okkur ekki að spássera um sögufrægar slóðir og reyna að læra aðeins meira í þeim ferðum en hversu mörg prósent bjórinn er á Kanarí.
Ekki svo að skilja að við séum að plögga eitt né neitt. Enginn úr ritstjórn þekkir haus né sporð á eigendum Mundo og aldrei hefur neitt okkar ferðast með ferðaskrifstofunni. En við þekkjum nokkra sem hafa látið vaða með Mundo og láta súpervel af.
Það sem er forvitnilegast við vöruval Mundo er hversu öðruvísi ferðir þeirra eru. Þar má til dæmis finna sérdeilis flotta ferð um hinn fræga Jakobsveg. Við hér þekkjum marga sem lagt hafa þá leiðina undir fót og öðlast skilning, visku og tilgang sem fæst ekki í Kringlunni á tilboðsverði. Nema Mundo tekur skakkan og skemmtilegan pól í hæð. Þetta er Jakobsvegurinn á reiðhjólum. Sem auðvitað er príma stöff fyrir okkur lata fólkið þó líklegt sé að rassæri geri vart við sig í túrnum 🙂
Önnur forvitnileg ferð Mundo er vals um útrýmingarbúðir nasista í Póllandi með sérstakri áherslu á að kynnast illsku og viðbjóð. Það þarf reyndar ekkert út fyrir landsteina til að kynnast viðbjóð. Þá nægir að skreppa á palla Alþingis og fylgjast með Sigmundi Davíð. En illska verður vart viðbjóðslegri en í Auschwitz þar sem lifandi manneskjur voru píndar, soðnar, steiktar, kæfðar og drepnar í milljónavís að skipan Hitlers og hans skítapakks á árum áður.
Allt er þegar þrennt er og ekki lítið forvitnilegur er túr Mundo til Búdapest í Ungverjalandi þar sem sérfræðingur reynir að efla samskiptahæfni og jákvæða eiginleika hjá ferðalöngum. Ekki slæmt að koma heim úr utanlandsferð með meira sjálfstraust plús að kynnast kynstrum að forvitnilegu fólki.
Sallafínt mál, ef í þér er dropi af forvitni um lífið og tilveruna, að kynna þér ferðaúrval Mundo. Það eru jú flestir aðrir bara að bjóða þetta hefðbundna sólarstrandlíf. Sem er ágætt út af fyrir sig en skilur ekkert eftir sig.







