Guði sé lof fyrir að Ísavía rekur ekki sjúkrahús landsins. Þrátt fyrir að stjórinn hafi fengið súperdúndurmega-launahækkun nýlega er þjónustu þessa ríkisfyrirtækis enn ábótavant.

Forstjóri Ísavía.Sá fékk væna launahækkun í byrjun apríl á síðasta ári en sagði tveimur vikum síðar að miklar launahækkanir annarra væru áhyggjuefni… Skíthæll með öðrum orðum.

Gott dæmi um það er að skoða lista Ísavía yfir þau flugfélög sem fljúga til og frá Keflavík. Sá listi eðalfínn fyrir fólk sem vill prófa eitthvað annað en það sem auglýst er í blöðum dags daglega. Eða hver hefur flogið mikið með Edelweiss, S7, Jet2, Austrian, Air Baltic eða Eurowings? Öll þessi flugfélög bjóða flug út í heim frá Keflavík á þessu ári og sum hver á lægra verði en þessi þekktu vinsælu flugfélög.

Slíkur listi þarf auðvitað að vera réttur til að hann gagnist. Og þar er Ísavía með buxur á hælum og brúnt í brók. Samkvæmt listanum flýgur þýska flugfélagið Germania til og frá reglulega á þrjá mismunandi áfangastaði. Sem er tóm steypa því illu heilli fór flugfélagið atarna í þrot fyrir tæpum mánuði síðan. Enginn kemst neitt með Germania um næstu eilífð.

Enn eitt dæmið um slæman rekstur Ísavía undir sama forstjóra og þáði, gegn reglum, boðsferðir frá Icelandair og harmaði launahækkanir annarra tveimur vikum eftir að hann sjálfur fékk væna hækkun. Út með Björn Óla Hauksson og á haugana með delann.