Ætli það sé sniðugt eða öruggt að kaupa flugferðir með Wow Air margar vikur eða mánuði fram í tímann?

Á meðan framtíð Wow Air er í uppnámi er vægast sagt kjánalegt að kaupa flug með félaginu fram í tímann.

Ritstjórn borist nokkur skeyti þessa efnis síðustu dægrin og ekki skrýtið með tilliti til síðustu fregna í fjölmiðlum. Fólk vill eðli máls samkvæmt hafa sínar ferðir og frí á hreinu og fátt virðist á hreinu um framtíð flugfélags Skúla Mogensen.

Snúðu viðskiptum annað

Að okkar viti er ekki mjög gáfulegt að geirnegla langþráð frí við flug Wow Air næstu misserin. Samkvæmt fréttum er eigandinn milli steins og sleggju. Annars vegar gerir hugsanlegur björgunaraðili, Indigo Partners, sífellt meiri kröfur ef bandaríski vogunarsjóðurinn á að koma inn með nauðsynlega milljarða til að bjarga því sem bjargað verður. Meðal annars þá kröfu að stofnandi og eigandi gefi næstum alfarið eftir hlut sinn og sigli sinn sjó í kjölfarið.

Auðvitað eru fjölmiðlar ekki með aðgang að öllum upplýsingum enda þær af mjög skornum skammti frá Wow Air og eigandinn sjálfur segist vitaskuld afar bjartsýnn á allt og allt. En það segir sitt að Icelandair sem á tonn af seðlum í bankanum sem fyrirtækið notar ekki neitt, sér enga góða ástæðu til að koma Wow Air til hjálpar þó á tombóluverði sé. Höfðu forsvarsmenn Icelandair þó í tæpan mánuð aðgang að öllum gögnum um Wow Air og rekstur þess fyrirtækis. Eða hvaða stórfyrirtæki grípur ekki fegins hendi tækifæri á að gleypa sinn stærsta samkeppnisaðila með húð og hári fyrir slikk og ingenting?

Ef spekingar Icelandair sjá engan djús í Wow Air er ósköp eðlilegt að bandarískur vogunarsjóður stilli eiganda Wow Air alvarlega upp við vegg. Þeir vita sennilega að þeir muni komast upp með slíkt vegna bágrar stöðu Wow Air. Það eru með öðrum orðum engir góðir kostir í stöðunni fyrir herra Mogensen.

Jafnvel þó Mogensen vildi ganga nauðugur frá borði, ólíklegt enda stofnandi og eini eigandi fyrirtækisins, og taka tilboði Indigo Partners þarf meira að koma til. Fjárfestar sem lögðu Wow Air til nokkra milljarða króna fyrr í vetur þurfa að kokgleypa tugmilljóna tap á þeim kaupum ef gengið verður að kröfum þeirra bandarísku. Fyrir þá fjárfesta skiptir sennilega litlu hvort tugmilljónir tapast með gjaldþroti Wow Air eða fjandsamlegrar yfirtöku skitins bandarísks vogunarsjóðs þar sem aðrir fjárfestar munu á engan hátt hafa nein áhrif á eitt né neitt í kjölfarið. Fjárfestingin er að mestu farin forgörðum hvort sem er.

Er Indigo Partners lausnin?

Ef rétt er að Indigo Partners vilji Mogensen burt og sjái fyrir sér að breyta Wow Air í Wizz Air er óhætt að slá föstu að Mogensen verður ekki sá eini sem fýkur burt. Bandarískur vogunarsjóður er ekki að sjá sóknarfæri í íslensku lággjaldaflugfélagi sem borgar starfsmönnum himinhá laun í samanburði á heimsvísu. Það er ekki þannig sem vogunarsjóðir hagnast alla jafna.

Eigandi Indigo Partners og kannski næsti eigandi Wow Air. Er þetta maður sem þú vilt eiga viðskipti við?

Af þeim sökum má leiða líkum að því að gangi allt eftir verði fátt íslenskt við Wow Air eftir tólf mánuði eða svo. Fyrirtækið líklega ekki einu sinni skráð hérlendis því það er miklu dýrara en að flytja klabbið til Búlgaríu, Bahama eða jafnvel bara Delaware í Bandaríkjunum þar sem skattlagning er lítil sem engin.

Vonum það besta en gerum ráð fyrir því versta

Ýmsir hafa skammað okkur hér gegnum árin fyrir harða gagnrýni á Wow Air og stöku raddir haldið því fram að við hér séum að ganga erinda hins og þessa. Sem er hárrétt. Við hér höfum gengið erinda íslenskra neytenda í tíu ár og munum ganga þann veg áfram.

Enginn vafi leikur á að tilkoma Wow Air hefur haft stórgóð áhrif á ömurlega einokun í flugi til og frá landinu um áratugaskeið. Enginn vafi leikur á að fargjöld til og frá landinu muni hækka nokkuð ef Wow Air hverfur í gröfina.

Ekki bara mínusar

Plúsarnir þó líka nokkrir ef Wow Air leggur upp laupa. Engin þörf á að eyða tugmilljörðum skattborgara í að byggja nýja flotta flugstöð á Suðurnesjum svo tvö stór flugfélög geti geymt erlenda viðskiptavini hér í klukkustund eða svo áður en flogið er með fólkið áfram allt annað. Ekki loku fyrir skotið að önnur erlend flugfélög sjái sóknarfæri ef Wow Air heyrir sögunni til. Ekki undarlegt að easyJet, Norwegian, Eurowings, Wizz Air eða bara Icelandair vilji fara varlega í að fjölga ferðum til og frá landinu meðan ekki liggur ljóst fyrir hvað verður um vinsælt lággjaldaflugfélag með toppaðstöðu í Leifsstöð. Þá má ekki gleyma að orðspor Wow Air er vægast sagt ömurlegt víða um heim og fyrirtækið ekki beint sýnt viðskiptavinum sínum lit og lipurð ef eitthvað hefur bjátað á. Þvert á móti hafa viðskiptavinir mátt eiga sig meðan Mogensen hefur leitað nýrra tækifæra til að græða meira og meira. Í öllu falli verður Wow Air aldrei „íslenskt” aftur ef Indigo Partners fá sínu fram.

Með allt þetta í huga er ekki mjög gáfulegt að sjoppa flug með Wow Air langt fram í tímann. Það er ekkert gefið að þeir fjármunir skili sér aftur í þinn vasa ef Wow Air brotlendir endanlega…