Tæpur mánuður áður en Bretar ganga formlega úr Evrópusambandinu. Hvort sem fólki þykir það jákvætt eða neikvætt leikur enginn vafi á að eftirleiðis þurfa Íslendingar sem aðrir að gefa sér töluvert meiri tíma í flugstöðvum landsins en nú er.

Raðir, raðir og raðir. Það verður pottþétt raunin við vegabréfaeftirlit í Bretlandi eftir Brexit.
Á velflestum flugvöllum Bretlandseyja hafa Íslendingar undanfarin ár vandræðalaust getað notast við Evrópusambandsútganga þó tæknilega sé Ísland alls ekki í ESB. Það hefur gjarnan þýtt að vegabréfaskoðun er annaðhvort engin eða í mýflugumynd með stikkprufum.
Slíkt verður vitaskuld ekki lengur í boði ef Bretar ganga út samningalausir í lok mánaðarins.
Stöku miðlar erlendir hafa greint frá því að ef Brexit gengur í garð án samninga sé samt sá fyrirvari milli Breta og Evrópusambandsríkja að þegnar ESB komist áfram klakklaust gegnum sérstök ESB-hlið í eitt ár í viðbót. Það liggur þó ekki ljóst fyrir frekar en annað hjá Bretum eftir Brexit. Aðrir miðlar segja ekkert slíkt samkomulag liggja fyrir þó rétt rúmar þrjár vikur séu í útgöngu Breta.
Það er í öllu falli góð hugmynd, sértu á leið til Bretlands eftir 29. mars næstkomandi að gera frekar ráð fyrir að þú fáir enga sérþjónustu umfram þegna Pakistan eða Makedóníu. Sem aftur merkir feita og mikla töf við vegabréfaskoðun. Mögulega jafnvel hreint kaos klukkustundum saman á stærstu flugvöllum. Þá verður nett helgarferð til London eða Glasgow aðeins minna spennandi.







