Eins dauði er annars brauð. Bretar hættir í Evrópusambandinu og margt það sem varað var við vegna þess hefur komið fljótt og örugglega í bakið á Tjallanum. Eins og gengi breska pundsins sem hefur ekki verið lægra gagnvart íslenskri krónu síðan í lok árs 2008.

Tíu prósenta afsláttur á breskum pundum þessi dægrin frá því sem áður var 🙂
Bretar mega eiga sinn harm í hljóði en við aftur á móti höfum nú tækifæri til að versla okkur full í borgum landsins og það á tíu prósenta afslætti ÁÐUR en við kaupum nokkurn hlut 🙂
Breska pundið er þegar þetta er skrifað rúmlega níu prósentum ódýrara fyrir Íslendinga en það var um miðja síðustu viku. Miðgengi dagsins er að þvælast kringum 166 krónur nú en hefur verið lengi vel nokkuð yfir 180 krónum hvert pund. Ekki útilokað að pundið falli meira en orðið er.
Þetta er aldeilis fínn tími til að sparka í Breta á öðrum vígstöðvum en á fótboltavelli. Þetta er nefninlega líka tíminn sem sumarútsölurnar fara að hefjast fyrir alvöru í London og öðrum borgum landsins. Velflestar verslanir fara að setja útsöluskiltin í gluggann í lok júní eða byrjun júlí.
Líklega hægt að fata sig aðeins betur upp í Bretlandi þessa vertíðina en þú áttir von á.







