Það var og. Tyrkir hafa eytt verulegum fjárhæðum til að bjarga því sem bjargað varð í ferðabransanum í landinu en nú er sennilega öll nótt úti. Að minnsta kosti tíu látnir eftir sprengju í helstu flugstöð landsins í Istanbúl.

Mannskæð árás á flugvellinum í Istanbúl. Mynd Ataturk Airport

Mannskæð árás á flugvellinum í Istanbúl. Mynd Ataturk Airport

Sök sér að hryðjuverkamönnum ISIS takist að sprengja mann og annan á fáförnum stöðum eða á götum úti í borgum landsins. En að þeir hafi komist upp með það líka á þeim stað þar sem öryggisgæsla er mest og best í landinu segir sennilega allt sem segja þarf um ferðalög í Tyrklandi þessi dægrin.

Það má því leiða líkur að því að fyrst hægt er að valda blóðsúthellingum á flugvellinum í Istanbúl þá er það líka hægt á flugvöllum sunnar í landinu sem vinsælir eru meðal sólunnenda norðan úr Evrópu. Kannski betra að bíða með að kaupa þetta fína tilboð þarna um daginn 😉