Bæði íslensku flugfélögin hafa nú bætt við aukaflugum til Parísar vegna landsleiks Íslands og Frakklands í átta-liða úrslitum EM á sunnudag. Og það fór sem við spáðum: bæði plokka áhugasama eins og enginn sé morgundagurinn.

Hardkor bisness hjá flugfélögunum vegna EM. Samsett mynd

Hardkor bisness hjá flugfélögunum vegna EM. Samsett mynd

Með Wow Air kemst fólk næstu sólarhringa til Parísar og heim um miðja næstu viku fyrir 120 þúsund krónur eða svo. Með tilliti til að algengt verð á flugi aðra leið þangað í sumar hefur verið þetta tíu til fimmtán þúsund þá er um ríflega 300 prósenta hækkun að ræða á þeim bænum.

Icelandair hefur einnig reynt að koma til móts við fólk með flugið en öllu síður með sanngjarna verðlagningu. Eins og við höfum ítrekað fjallað um er það batterí sífellt að skreyta sig upp sem óskabarn þjóðarinnar en þegar á hólm er komið er engu minni græðgi þar en hjá Skúla skelfi hjá Wow Air. Icelandair líka að bjóða þessi „fínu“ fargjöld á 120 þúsund krónur að lágmarki.

Enginn vafi leikur á að starfsfólk flugfélaganna hefur þurft að vinna einhverja yfirvinnu til að tryggja fleiri flugferðir og auðvitað kostar sitt að leigja heila vél með litlum fyrirvara. En einhvern veginn hefði maður haldið að við svona sérstakt tilefni sýndu flugfélögin auðmýkt og skilning og reyndu að koma fólki til og frá á sanngjörnu verði. 120 þúsund krónur fellur ekki undir það og sérstaklega ekki fyrir atvinnuleysingja og marga öryrkja. Þetta gróflega sú upphæð sem þeir hafa til að lifa af mánuðinn.

Ágætt að muna næst þegar Icelandair birtir fallega og fokdýra jólaauglýsingu eða Wow Air montar sig af því að vera flugfélag fólksins.