Enn fjölgar í flóru flugleitarvéla á netinu og allir reyna þar að standa upp úr eins og kostur er. Einni slíkri þykir hafa tekist sérstaklega vel til en það er vefurinn Routehappy hvers mottó er að öll flug eru ekki sköpuð jöfn.

Breiðustu sætin, mesta sætisbil, vélar með net um borð og fleiri leitarmöguleikar hjá nýrri flugleitarvél
Þar er ekki aðeins í boði að leita að hagstæðustu fargjöldum eins og annars staðar heldur líka hægt að leita með nýstárlegum leitarskilyrðum. Þannig má finna skemmtilegasta flugið, besta flugið að teknu tilliti til verðs og þjónustu eða leita eingöngu hjá þeim flugfélögum sem bjóða meira sætisbil en venjulega eða aðeins hjá þeim er bjóða net um borð svo tvö dæmi séu tekin.
Routehappy hefur strax náð að fanga marga sem leiðir eru á hefðbundnari leitarvélum og það á undraskömmum tíma en vefurinn var opnaður síðastliðinn apríl. Routehappy hér.







