Allur er varinn góður að auglýsa nú þegar páskaferðir á næsta ári eins og ferðaskrifstofan GB ferðir gerir í dag þar sem þeir kynna sértilboð sín í haust og um páska 2014 til Orlando á Flórída. Átta daga páskaferð þeirra, 14. til 22. apríl, á hinu glæsilega Omni Resort hóteli fæst fyrir 518 þúsund krónur miðað við tvo saman.
Hótelið er skrambi gott og það þekkja margir frá fyrri tíð en þar er til að mynda í boði að leika tvo heimsklassa golfvelli á hótellóðinni svo fátt eitt sé nefnt en Omni fær ágæta dóma á öllum helstu netmiðlum.
Óhætt er að gera ráð fyrir að GB ferðir séu með ágæta samninga bæði við Icelandair vegna flugsins og eins hótelsins en það breytir ekki því að Fararheill finnur sams konar pakka og GB bjóða og það 21 þúsund krónur ódýrara miðað við tvo saman.
Við leituðum fyrst að sama flugi með Icelandair út þann 14. apríl og heim aftur þann 22. apríl.
Þá fórum við á langbestu hótelbókunarvélina, Hotelscombined, sem leitar að besta verði hjá fjölda slíkra hótelbókunarvéla og finnum þetta tilboð hér á double deluxe, sömu herbergjum og GB býður sínum viðskiptavinum.

Miðað við miðgengi á hádegi 5. júlí 2013 kostar átta daga dvöl á Omni Resort fyrir tvo 253 þúsund krónur.
Fararheill er þannig kominn með sama flug og sömu gistingu og GB auglýsir miðað við tvo saman á 518 þúsund krónur fyrir 497 þúsund krónur. Samt er Fararheill ekki með neina samninga við Icelandair né Omni Resort.
Einnig skal hafa í huga að hótelið tekur aukalega svokallað resort fee sem eru 16$ á dag eða alls 128 dollarar hvort sem bókað er á eigin spýtur eða gegnum GB ferðir. Þá er heldur ekki innifalið að komast til og frá flugvelli og sá kostnaður bætist við.
Þó má heldur ekki gleyma að ferðafólk nýtur öryggis með ferðaskrifstofu falli ferð niður eða annað fari miður sem er ekki í boði nema að takmörkuðu leyti þegar ferðast er á eigin vegum.
Það sem hins vegar vantar dálítið í kynningu GB ferða á þessari ákveðnu ferð er að þarna er kannski fyrst og fremst að ræða ferð fyrir kylfinga sem vilja prófa þá tvo velli sem hótelinu tilheyra og eru báðir hrein snilld enda hannaðir af Greg Norman. Hvergi er tiltekinn kostnaður við það en leit Fararheill á vef hótelsins leiðir í ljós að ekki er hægt að sjá verð í golfið svo langt fram í tímann. Hins vegar er algengt verð til hótelgesta í sumar og haust milli 76 og 84 dollara eða frá 9.400 krónum einn hringur. Séu báðir aðilar að spila fjórum sinnum eða svo nemur kostnaður við slíkt rúmlega sjötíu þúsund krónum aukalega.









