Það sem af er þessu ári hefur Wow Air boðið hartnær helmingi fleiri flugtilboð en samkeppnisaðilinn Icelandair samkvæmt úttekt Fararheill. Fjórtán sinnum hefur risinn auglýst hraðtilboð meðan Wow hefur 24 sinnum boðið sérkjör á flugferðum til og frá landinu.
Við tókum saman öll sértilboð samkeppnisaðilanna tveggja frá byrjun árs og fram til loka júní og einskorðuðum okkur við flugtilboð en létum sérstök hótel- eða vildarpunktatilboð eiga sig sem og öll tilboð í sérstakar pakkaferðir. Slík flugtilboð eru nánast eini möguleiki Íslendinga til að komast ódýrt út í heim.
Í ljós kemur að Wow hefur á þessu 180 daga tímabili boðið sérstök tilboð alls 24 sinnum meðan Icelandair hefur einungis boðið svokölluð hraðtilboð sín fjórtán sinnum. Það væri töluverður munur ef þessi fyrirtæki væru jafnstór en með tilliti til að Icelandair er margfalt stærri aðili með mun fleiri vélar, áfangastaði og tíðni ferða er munurinn sláandi.
Tilboðin sem um ræðir eru vitaskuld eins misjöfn og þau eru mörg og ekki dómur lagður á þau per se en almennt má segja að mjög algengt meðalverð á flugtilboðum beggja aðila sé í kringum fimmtán þúsund krónur á þessu ári.
Flest reyndust tilboð Wow vera í janúar og febrúar eða fimm talsins báða mánuði en félagið hefur þó haldið sínu striki og bauð þrívegis sértilboð í júní. Þann mánuð var Icelandair ekkert að púkka upp á landann og bauð aðeins einu sinni hraðtilboð en flest voru þau þrjú í maí, febrúar og janúar.








