Velflestir þekkja hina frægu kvikmynd Jaws, Ókindin, þar sem stór hvíthákarl olli vægast sagt miklum usla í litlu bæjarfélagi undan strönd Bandaríkjanna.
Kvikmyndin sú var tekin að hluta ekki langt frá Cape Cod, Þorskhöfða, en þar hefur tilkynningum um hvíthákarla fjölgað ört síðustu tvö árin og einn einstaklingur verið bitinn. Sá slapp með skrekk og stóran skurð en varð jafnframt fyrsti maðurinn sem bitinn er af hákarli undan Cape Cod síðan 1936.
Nú virðist sem kvikmyndin Jaws sé að eiga sér stað í raunveruleikanum því svæðið allt lifir meira og minna á ferðaþjónustu eins og bærinn í kvikmyndinni og þó áberandi fjölgun tilkynninga um hákarla sé staðreynd þá vilja menn ekki auglýsa það mjög stíft af ótta við að missa viðskipti annað.
Að sama skapi vita menn mætavel að ef alvarleg hákarlaárás á sér stað er ferðamannatímabilinu við Cape Cod lokið um ótiltekinn tíma.
Cape Cod er rétt rúmlega klukkustund frá Boston á austurströnd Bandaríkjanna og er einn allra vinsælasti ferðamannastaður í Massachusettsfylki eins og lesa má nánar um hér.








