Það var nú eiginlega bara tímaspursmál en lággjaldaflugfélagið Norwegian hefur nú, fyrirvaralaust, tekið upp handfarangursgjald. Það gildir þó aðeins fyrir fátæku plebbana sem kaupa ódýrustu fargjöldin.

Handfarangur að hluta til ekki lengur ókeypis hjá Norwegian.
Frá upphafi hefur flugfélagið leyft öllum farþegum sínum að hafa með sér 10 kíló eða svo af handfarangri meðferðis í flug án aukakostnaðar. En ekki lengur – nema að hluta til 😉
Jú, sjáðu til. Þeir norsku elska að gera einfalda hluti flókna. Þeir hafa sannarlega tekið upp á því að banna handfarangur fólks á almennu farrými nema greitt sé aukalega fyrir. ÞÓ AÐEINS ef flugfarþegar ætla að koma þeim handfarangri fyrir í farangursrými fyrir ofan sæti. Farþegum er enn heimilt að taka með fimm kílóa töskudruslu frítt en AÐEINS ef sú druslan er geymd UNDIR SÆTI.
Jamms, norskurinn með öllum mjalla eins og venjulega. Slíkt prógramm kallar bara á vesen fyrir utan að þrengja í raun enn meira að þegar níðþröngu plássi sem Jón og Gunna hafa á flugi. Það er jú eina leiðin til að teygja lappirnar að gera það undir stólinn fyrir framan. Ef þar ef taska fyrir á fleti er ljóst að blóðtapparnir gleðjast en aðrir ekki. Flugið verður enn meiri martröð en það þegar er.
Þá á enn eftir að vita hvernig Norwegian ætlar að framfylgja þessari vitleysu. Er feit sekt ef einhver laumast til að pota handtösku upp í farangursrými án þess að hafa greitt fyrir? Eða verður viðkomandi bara flengdur á almannafæri?
Tóm della og mun klárlega fækka aðdáendum Norwegian. Það er bara svo og svo mikið sem við höfum áhuga að láta taka okkur í skraufþurrt daginn út og inn.







