Hmmm. Kannski eru sömu fyrirmenn og fræðingar að störfum innanhúss hjá Icelandair nú og þóttu móðins á efstu hæðum í Kaupþingi á árunum fyrir Hrunið. Eða hvers vegna tekur það fræðinga flugfélagsins heilt ár að ákvarða framtíðarstefnu Icelandair varðandi flugflotann?

Fræðingar Icelandair telja enn að Boeing verði samkeppnishæft næstu ár og áratugi.

Kannski fá fræðingar Icelandair greitt per fund eða með tímakaup fyrir fundahald. Það útskýrir hvers vegna það tekur 365 daga plús að ákvarða hvort meira vit sé í að halda áfram ljúfum selskap við hið bandaríska Boeing eða taka u-beygju og henda sér í sæng með hinu evrópska Airbus. Aðrir möguleikar eru ekki til staðar nema einhvers konar samkrull og slíkt veit aldrei á gott í neinum rekstri.

Forstjóri Icelandair hefur enn fulla trú á því að Boeing Max vélarnar eigi eftir að sanna sig þegar þar að kemur og bregður ekkert við að flugfélagið sendi frá sér sína SJÖTTU viðvörun þess efnis að Boeing Max rellurnar séu nú ekki alveg að detta í gagnið eins og vonir stóðu til.

Á Boeing Max sér framtíð?

Ekki svo mikið. Ekki líður sólarhringur þessi dægrin án sífellt fleiri fregna af tómu rugli í bandarísku flugvélaverksmiðjunum. Starfsmenn í sífelldri yfirvinnu þrátt fyrir vankunnáttu, verkfræðingar efast um verklag stjórnenda, reynsluflugmönnum dettur ekki til hugar að senda fjölskyldur sínar í Max-vélar. Nýr forstjóri segir ekkert að vélunum og segir vandamálið að erlendir flugmenn viti ekkert hvað þeir séu að gera. Þrátt fyrir að fleiri hundruð manns hafi látið lífið í Max-vélunum sé áherslan fyrst og fremst enn á arð til hluthafa. Því samasemmerki sé milli arðs og öryggis. Og svo framvegis og svo framvegis… Vörumerkið Boeing Max er nú jafn ónýtt og verðlaust og Crystal Pepsi.

Það þarf ekki lengi að leggja haus í bleyti hér. En kannski eru fræðingar Icelandair ekki starfi sínu vaxnir…

Bjartsýni forstjórinn

Forstjóri Icelandair, með sína tröllatrú á Max-vélarnar, býst nú við að gangsetja rellurnar um mitt ár og vitnar þar í fréttatilkynningar Boeing. Það byggist á því að Flugmálastofnun Bandaríkjanna, FAA, gefi grænt ljós á klabbið. En stjórinn gleymir þá því að allmargar flugöryggisstofnanir annarra ríkja ætla að framkvæma sínar eigin úttektir á Max-vélunum. Þar á meðal allnokkrar stofnanir í Evrópu enda var það FAA sem gaf Boeing upphaflega grænt ljós þótt allt væri í volli. Þetta þýðir að jafnvel þó Kaninn blessi sínar vélar hægri vinstri er langur vegur frá því að Icelandair geti flogið Max-vélunum hingað og þangað um leið og FAA gefur grænt ljós. Það þarf líka að bíða eftir öllum öðrum í þeim ríkjum sem Icelandair flýgur til og frá.

Boeing á brauðfótum

Jafnvel þó að allt gangi 100 prósent að óskum hjá Boeing og Max-rellurnar fái flugleyfi á ný er ekki allur Björn Bjarnason unninn. Finna þarf leiðir til að fá almenning til að stíga til himins með vélum sem hafa dregið fleiri hundruð manns til dauða. Vélum fyrirtækis sem hefur verið stanslaust neikvætt fjallað um í öllum fréttamiðlum heims um árs skeið.

Elskar Max vélar og hefur fullt traust til Boeing. Einhver þarf að segja þessum stjóra til syndanna. Mynd Icelandair

Þá má ekki gleyma því að ef Boeing Max fær grænt ljós og hið minnsta vandamál kemur upp í flugferð í kjölfarið rífa fjölmiðlar það í sig eins og Ögmundur Jónasson sinn gamla flokk.

Komi eitthvað alvarlegt upp í Max-vél næstu misserin í kjölfar flughæfisskírteinis er þessi tegund flugvéla endanlega dauð og grafin.

Ætlar Icelandair að taka sjéns á því?

Airbus baby

Þess vegna segjum við að það gáfulegasta sem Icelandair gerir er að flytja allt klabbið yfir til Airbus. Víst er það aðeins dýrara enda íslenska fyrirtækið ekki með sömu afsláttarkjör þar og sem vildarvinur Boeing og víst þarf að punga út fyrir þjálfun á nýjar vélar. En á móti kemur er Airbus evrópskt fyrirtæki eins og Icelandair, það er að framleiða glænýjar rellur sem ekki byggja á 50 ára gömlum stöðlum eins og Boeing gerir og Airbus er mun framar í framleiðslu sparnýtinna véla og það mun skipta meira og meira máli nú þegar sífellt fleiri hafa áhyggjur af hlýnun jarðar og flugskömm.

Boeing aftur á móti er með ekkert á teikniborðinu og jafnvel þó þeir hefjist handa í gær mun ný rella frá þeim ekki líta dagsins ljós fyrr en eftir tíu til tólf ár eða svo.

Það er þess vegna sem fræðingar Icelandair ættu að hafa komist að niðurstöðu fyrir ellefu mánuðum síðan. En það er greinilega eitthvað allt annað sem ræður fundahaldi fræðinganna…