Tíðindi

New York fyrir 62 þúsund með Delta

  21/11/2011desember 7th, 2014No Comments

Staðfest er að bandaríska flugfélagið Delta Airlines hyggst áfram fljúga til Íslands frá New York næsta sumarið eins og það síðasta og nú á betra verði.

Er það vel því þótt fargjöld flugfélagsins í fyrra hafi ekki verið samkeppnishæf við Icelandair eða Iceland Express horfir málið öðruvísi við nú.

Af úttekt ritstjórnar Fararheill á vef Delta kemur í ljós að í sumar verður hægt að komast fram og til baka frá New York með flugfélaginu fyrir rúmar 62 þúsund krónur sem er lægra verð en Delta bauð í sumar.

Það er líka lægra verð en Icelandair auglýsir á vef sínum til New York í júní eða júlí en þar finnst ekkert undir rúmum 67 þúsund krónum eins og staðan er nú.