Ferðasalinn Iceland Express hefur sagt upp samningi sínum við flugfélagið Astreus og mun eftirleiðis brúka vélar frá tékkneska flugfélaginu CSA Airlines. Það flugfélag fær hærri einkunn en Icelandair fyrir þjónustu og þægindi. Er ekki gert ráð fyrir neinni röskum vegna þessara aðgerða.
Standa vonir Iceland Express til þess að með þessum ráðahag sé hægt að ráða bót á miklum röskunum og töfum sem orðið hafa á áætlunum undanfarin misseri en CSA Airlines er tiltölulega stundvíst flugfélag. Þá eru vélar CSA af gerðinni Airbus 320 en pláss farþega í þeim vélum er töluvert meira og betra en verið hefur í vélum Astreus.
Hafa sögusagnir verið uppi síðustu daga um eitthvað þessu líkt en tilkynningin kemur engu að síður mörgum í opna skjöldu því Pálmi Haraldsson, aðaleigandi Iceland Express, er líka aðaleigandi Astreus flugfélagsins. Það félag er sagt orðið gjaldþrota.
Ef marka má umsagnir farþega á vef Skytrax um CSA Airlines er um mikla bót að ræða. Hingað til hefur Iceland Express með vélum Astreus aldrei fengið hærri einkunn en 2 af tíu mögulegum en flug með vélum CSA fá einkunnina 5,2 sem er betri einkunn en Icelandair fær hjá farþegum sínum.






