Tíðindi

Hvað er í gangi hjá Iceland Express?

  20/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Innan við mánuður er síðan ferðasalinn Iceland Express auglýsti fargjöld aðra leiðina til New York í Bandaríkjunum á rúmar tuttugu þúsund krónur. Nú þarf fólk hins vegar að greiða tæpar hundrað þúsund krónur fyrir flug aðra leiðina?

Samkvæmt vef ferðasalans kostar nú tæpar tvö hundruð þúsund krónur fyrir einstakling að ferðast með Iceland Express til New York í Bandaríkjunum sem nóta bene er eini áfangastaður ferðasalans sem eftir er vestanhafs eftir að nýr forstjóri, sá þriðji á skömmum tíma, tók við taumum fyrir mánuði síðan.

Fundust ódýr fargjöld með ferðasalanum til New York fram á þessa viku en skoði fólk ferðir Iceland Express til New York á vef flugfélagsins nú verður ekkert komist þangað undir 193 þúsund krónum fram í janúar. Þá hættir ferðasalinn alfarið ferðum til borgarinnar um þriggja mánaða skeið eins og Fararheill hefur greint frá.

Þrátt fyrir óskir um skýringar á þessum gríðarmiklu hækkunum á fargjöldum hafa engin svör fengist frá Iceland Express.

Ljóst má þó vera að eitthvað verulega mikið hefur farið úrskeiðis hjá flugfélaginu og það á skömmum tíma fyrst fargjöld til eins af vinsælli stöðum ferðasalans hækka yfir nótt um hundruð prósenta.