Af og til þegar rólegt er á ritstjórn Fararheill.is gerum við gjarnan eitthvað stórkostlegt eða fáránlegt. Ein af fáránlegri hugmyndunum er hin glænýja keppni: Myndarlegasta borg heims. Er sú úttekt gölluð á alla kanta en það sem meira er um vert þá er hún skemmtileg.

Á vef Flickr eru langflestar myndir af London af borgum heimsins

Á vef Flickr eru langflestar myndir af London af borgum heimsins

Snýst keppnin um að telja saman fjölda ljósmynda á vefnum Fickr.com fyrir hverja borg fyrir sig en þótt aldrei verði það vísindaleg úttekt þá gefur hún kannski pínulitla mynd af hlutfallslegum vinsældum hverrar borgar fyrir sig.

Leitarorðin voru öll á engilsaxnesku, ensku öðru nafni, en við vitum mætavel að sú talning á aðeins við um þá enskumælandi ljósmyndara sem borgina heimsækja. Það getur líka kannski útskýrt efstu tvö sætin.

Myndarlegustu borgirnar á Flickr.com í ágúst 2009 eru þessar:

  1. London – 8.1 milljón mynda alls
  2. New York – 7.3 milljónir mynda alls
  3. París – 6.2 milljónir mynda alls
  4. Berlín – 2.7 milljónir mynda alls
  5. Barcelona – 2.7 milljónir mynda alls
  6. Los Angeles – 2.2 milljónir mynda alls
  7. Róm – 2.1 milljón mynda alls
  8. Amsterdam – 2.0 milljónir mynda alls
  9. Madrid – 1.5 milljónir mynda alls
  10. Feneyjar – 1.4 milljónir mynda alls.